Balrock – The Box
Þann 26. febrúar næstkomandi kemur út stuttskífan The Box með tæknólistamanninum Balrock. Listamaðurinn á bakvið Balrock er Kópavogsbúinn Bjarki Hallbergsson. Hann var meðlimur raftríósins Plugg’d, sem nutu mikilla vinsælda fyrir nokkrum árum síðan, og nam hann hljóðupptökufræði í hljóðvinnsluskólanum School of Audio Engineering í Bretlandi á árunum 2004 til 2006. Hann gat sér góðan orðstír sem fastasnúður við hinn vinsæla skemmtistað Papparazzi í Manchester og sá orðstír varð til þess að hann hefur komið fram á klúbbakvöldum fyrir Pacha og Ministry of Sound. Hann hefur einnig verið tíður gestur í skemmtikvöldum Techno.is, ásamt því að hafa hitað upp fyrir stórstjörnur á borð við Fedde Le Grand og Wally Lopez. Bjarki er einnig meðlimur í tvíeykinu Dusk, en raftónlistaráhugamenn eru hvattir til þess að leggja það nafn á minnið. Stuttskífan The Box með listamanninum Balrock verður fáanleg á Beatport-síðu Geysir Records.
Íslenska útgáfufyrirtækið Geysir Records er nýtt af nálinni og hafa þeir verið ansi iðnir við kolann, en alls þrjár stuttskífur hafa nú litið dagsins ljós. Geysir Records er hugarfóstur Ricardo Gomez og Óðins Kára Karlssonar. Fyrsta útgáfan kom út í desember í fyrra og var frumburðurinn Out of Sense eftir fyrrnefndan Balrock og var sú skífa ágætis áminning um þann kraft og áræðni sem leynist í tæknósamfélagi Íslands. Björn Salvador Kristinsson (betur þekktur sem Bjössi Brunahani) steig næstur á stokk undir dulnefninu Pavillion með stuttskífuna Plug It In. Á skífunni var að finna hið fínasta naumhyggjutæknó með sveimáhrifum, sem virkar bæði sem danstónlist fyrir líkama og sál. Þriðja útgáfan var í höndunum á Bosníumanninum Tex-Rec (Almir Memic) og setti hún áframhaldandi línur fyrir fyrirtækið með stuttskífunni Line EP. Almir, sem fæddur er í smábænum Lukavac sem staðsettur er í norðvesturhluta Bosníu, er þekktastur fyrir stuttskífu sína Androlium, sem kom út á hinu virtu þýskri útgáfufyrirtæki Nachstrom Schallplatten. Stuttskífan The Box með Balrock er fjórða útgáfa fyrirtækisins og ljóst er að framtíðin er björt í heimi íslenskrar tæknótónlistar.
Miðvikudaginn þann 22. febrúar (á morgun!) verður einstakt tækifæri fyrir áhugasama að kynna sér útgáfur Geysir Records, þar sem fyrirtækið verður með kynningu á Iðusölum (Lækjargata 2a). Fram koma Ricardo Gomez og Invert með plötusnúðasyrpur og Balrock verður með lifandi flutning á frumsömdum verkum. Fyrstu atriði hefjast klukkan 22:00 og er ókeypis inn á viðburðinn.
Hlekkir:
Kynningarkvöld Geysis á hvarmskinnu
