City of Yes – Red Hair Girl
Þann 7. ágúst síðastliðinn kom út á stafrænu formi lagið Red Hair Girl eftir City of Yes, en það þriðja útgáfa húsmerkisins Color Me Records. Alexander Briem leggur til raddir og auk lagsins fylgir endurhljóðblöndun eftir Steindor Jonsson. Útgáfuna er hægt að nálgast á Beatport og öðrum völdum tónlistarveitum.
City of Yes er samstarfsverkefni Steindórs Jónssonar og Jóns Eðvald, sem auk Áskels (Áskell Harðarson) og B.G. Baarregaard (Björn Gauti Björnsson) eru mennirnir á bak við Color Me Records. Bæði Jón og Steindór koma fram reglulega sem plötusnúðar, en þeir hafa einnig verið með endurhljóðblandanir á fyrri útgáfum merkisins. Upphaflegur tilgangur lagsins og kveikjan á samstarfinu var sú að þeim vantaði afmælisgjöf. Þessi afmælisgjöf er þó búin að lauma sér á tvo lista; vikulegan lista Beatport, 10 Must Hear Nu Disco Tracks – Week 32 og Topp 30 lista íslenska útvarpsþáttarins Party Zone vikuna 4. til 11. ágúst.
Color Me Records á hvarmskinnu
