Exos – With The (Re-edited)
Teknókóngurinn Exos (Arnviður Snorrason) þekkja ef til vill margir í tengslum við Techno.is samkomurnar, en áður fyrr var hann einn af máttarstólpum Thule samsteypunnar og fyrsti valkostur í plötutöskur helstu teknóplötusnúða á meginlandinu. Hann hefur látið lítið sér fara í tónlistarsköpun síðustu árin, en hér er nú út komin fyrsta tólftomma hans í hartnær sjö ár. Um er að ræða endurgerðir á laginu hans With The, sem fyrst kom út á breiðskífunni Strength árið 2001 hjá þýska útgáfufyrirtækinu Force Inc. Þetta er naumhyggjuteknó í hæsta gæðaflokki. Þeir sem leggja hönd á plóg við að endurgera lagið eru Yagya (Aðalsteinn Guðmundsson), Oculus (Friðfinnur Sigurðsson), hinn argentíski Andres Zacco, ásamt því að Exos og íslenski raftónlistarmaðurinn Ruxpin (Jónas Þór Guðmundsson) endurvinna lagið í sameiningu. Það er útgáfufyrirtækið Aux-Rec sem gefur stuttskífuna út, en það er undirfyrirtæki Airdrop Records. Stuttskífan er einungis fáanleg á vínylformi.
Stuttskífan hefur hlotið stuðning frá virtum plötusnúðum á meginlandi Evrópu, svo sem Joris Voorn, Laurent Garnier, Marco Carola, Tim Xavier, Matthew Dear og Scuba.
Hlekkir
