Risaeðlan #4: Ilo – Ilo

Ilo - Ilo

Ilo - Ilo

Á hápunkti Thule samsteypunnar árið 2001 kom út frumraun raftónlistarmannsins Ilo (Ólafur Breiðfjörð). Breiðskífan nefndist einfaldlega Ilo og var um að ræða hliðarspor fyrir Thule, sem höfðu einbeitt sér mestmegnis að naumhyggjutæknó. Skífan kom út á undirfyrirtæki samsteypunnar, Uni:Form Recordings og var þetta ellefta útgáfa undirfyrirtækisins.  Listamaðurinn hafði áður tekið þátt í hinu áhugaverðu endurhljóðblöndunarverkefni Sigur Rósar, Vonbrigði, og skilaði þar frá sér afar frambærilegri endurhljóðblöndun af lagi þeirra Myrkur. Einnig hafði hann endurhljóðblandað krúttbandið Múm, sem og gert Flottan sófa Stjörnukisa enn flottari.

Vinnsla plötunnar tók tvö ár og fékk hann til liðs við sig meðal annars Karl Davids fyrrum meðlim Subterranean, Jarþrúði Karlsdóttir söngkonu og Þórdísi Claessen. Útkoman voru tíu lög í jaðarkenndum rafstíl með brotnum töktum og hlýóma hljóðheimum. Hún er hæggeng, en þó stemmningsfull. Umslag plötunnar eru sýnishorn eftir hans eigin málverkum, enda útskrifaður úr málunardeild Listaháskóla Íslands. “Tónlist er byggð upp á hljóðbútum hér og þaðan og þess vegna ákvað ég að hafa umslagið í sama dúr. Ég tók búta af málverkum eftir sjálfan mig og vann umslagið út frá því” sagði Ólafur í viðtali við Fréttablaðið í kjölfar útgáfu breiðskífunnar. Platan kom einnig út á vínyl og hefur hún að geyma átta lög af breiðskífunni. Tónjöfnun plötunnar var í góðum höndum Finns Björnssonar, Finns Hákonarssonar og Herra Thule, Þórhalls Skúlasonar og má með sanni segja að hljómur plötunnar hafi verið til fyrirmyndar.

Íslenskir gagnrýndur voru allir á sama máli um að hér væri gæðagripur á ferðinni. Trausti Júlíusson hjá DV lýsti breiðskífunni sem “Valíum fyrir vandláta” og kemur honum á óvart hversu poppuð platan er. “Ólafur virðist spretta fram nánast úr engu, tónlistarlega fullskapaður og hefur þegar náð að búa sér til eigin stíl sem gaman verður að heyra hvernig hann þróar í framtíðinni”. Orri Harðarson hjá Morgunblaðinu skrifar um frumraunina: “ILO er róleg plata. Ekkert er hratt. Hlýóma stemningar svífa út úr hátölurum og oft er auðugt hugmynda. Þrástef eru títt notuð og hryngrindur eru flestar afar vel til fundnar.” Gagnrýnandinn var hrifinn af útsetningu og einfaldleikanum, en talar sérstaklega fallega um lagið Artificial Intelligence, þar sem söngkonan Jara (Jarþrúður Karlsdóttir) syngur. “Lagið, sem er hin þekkilegasta dægursmíð, er dreymið í ómi og minnir eilítið á tónlist Angelo Badalamenti. Jara syngur lagið loftkennt en þokkafullt í anda Julee Cruise sem starfaði einmitt eftirminnilega með áðurnefndum Badalamenti hér áður fyrr.”

Eftir útgáfu breiðskífunnar sigldi Ilo á önnur mið og gaf meðal annars út afar vel heppnaða hústónlistarstuttskífu, Champañeria, sem kom út á íslenska útgáfufyrirtækinu 66 degrees sama ár. Sú stuttskífa hafði að geyma tónsmíðar hans frá dvöl hans í Barcelona og má greina áhrifa þess í tónsköpuninni. Lög af þeirri stuttskífu rötuðu m.a. á Mix FM Year One safnskífu, sem og safndiskinn Shaken Not Stirred á vegum hinni rómuðu útgáfu Plastic City. Lítið hefur farið fyrir tónlistarsköpun hans undanfarin ár, en hann dúkkar upp af og til með áhugaverðum tónsmíðum, nú síðast á S-Hit Records, sem er hugarsmíði hins goðsagnakennda Hunk of a Man, sem margir þekkja einnig sem Magga Lego. Árið 2009 kom út stuttskífan Yesterdays Player á vínylformi og hafði hún að geyma djúphústónlist í hæsta gæðaflokki. Nú síðast lét hann bæra á sér með endurvinnslu á laginu Warp með ensku hljóðgervlagrúbbunni New Musik og kom það lag út á óopinberlega út á Pleasure International Exports síðustu jól.