Yagya – The Inescapable Decay of My Heart
Þann 8. ágúst næstkomandi kemur út fjórða breiðskífa íslenska raftónlistarmannsins Yagya (Aðalsteinn Guðmundsson). Eftir hann liggja þrjár afar vel heppnaðar breiðskífur sem allar hafa hlotið verðskuldað lof tónlistarspekúlanta og raftónlistaráhugamanna um heim allan. Hann er talinn einn af fánaberum Döbbtæknóstefnunnar (e. dub techno) og kom því mörgum á óvart að hann skyldi brjóta upp formið á sinni nýju breiðskífu. Breiðskífan hefur verið lengi í vinnslu og má heyra það á lokaútgáfunni að nostrað hefur verið við hvert einasta smáatriði. Nýja breiðskífan, sem hlotið hefur nafnið The Inescapable Decay of My Heart, kemur út á japanska útgáfufyrirtækinu Kilk, sem glöggir tónlistaráhugamenn ættu að kannast við þar sem Worm is Green gaf þar út breiðskífu sína Glow fyrir ári síðan. Á breiðskífunni fær hann í heimsókn söngkonurnar Ellen Kristjánsdóttir, Elísabet Eyþórsdóttir, Esther Talía Casey og Siggu Þóru, auk þess sem að Yagya syngur sjálfur í tveimur lögum. Með útgáfunni fylgir aukadiskur, sem inniheldur sönglausar (e. Instrumental) útgáfur af lögunum. Tónjöfnun var í höndunum á Mandy Parnell, sem hefur tónjafnað fyrir Björk, Underworld og fleiri kanónur.
Breiðskífan heldur í sama form og hann hafði unnið með áður, þ.e.a.s. Döbbtæknóformið og bætir við það ákveðnu popptónlistarformi. Samblandan heppnast, að okkar mati, afar vel og eru fjölmiðlar nú þegar byrjaðir að dásama henni. Rússneska vefritið Arrhytmiasound skrifar t.a.m. „Guðmundsson hefur aldrei endurtekið sjálfan sig og heldur áfram að koma áhangendum sínum á óvart.“
Breiðskífan kemur út á geisladiskaformi, ásamt stafrænni útgáfu.
Hlekkir
